- 31 Mar 2023
- 1 Mínútur að lesa
- Prentaðu
- MyrkurLjós
- Pdf
2D / BIM / GIS / Info
- Uppfært þann 31 Mar 2023
- 1 Mínútur að lesa
- Prentaðu
- MyrkurLjós
- Pdf
2D/BIM/GIS býður upp á myndræna framsetningu gagna í MainManagerFM
Fyrir ofan gagnasvæðið á hægri hlið eru fjögur tákn.
Þegar ýtt er á eitt af fyrstu þremur táknunum, birtast eftir virkni gagnvirkar teikningar, þrívítt líkan eða kort.
2D - Teikningar
Myndrænt yfirlit með gagnvirkum 2D teikningum
MainManager býður upp á að birta upplýsingar í 2D-teikningum (gagnvirkum teikningum). 2D-teikningar eru lesnar inn í kerfið útfrá Autocad teikningum eða IFC skrám sem innihalda meðal annars upplýsingar um nafn, tegund og stærð byggingahluta. Til að mynda inniheldur hæðarteikning öll rými á hæðinni og mögulegt er að reikna flatarmál sjálfkrafa útfrá skrám sem lesnar eru inn. Þegar teikningar hafa verið lesnar inn, birtast þær í öllum ferlum og einingum með því að notandi smellir á 2D táknið.
Þú getur lesið CAD teikningarnar þínar inn og notað þær til að fá betra yfirlit yfir hvar verkin þín, búnaður, ábendingar og skipulagseiningar eru staðsettar.
Litakóðar gefa svo enn betra yfirlit og greiningu á upplýsingum eignanna og tákn eru sett inn til að sýna hvar atvik og verkbeiðnir eru staðsett innan bygginga.
BIM
Myndrænt yfirlit með BIM
BIM eru þrívíð líkön sem bjóða upp á myndræna framsetningu gagna. BIM líkan inniheldur upplýsingar um byggingu, hæðir, rými, tæknikerfi o.fl. sem mögulega er hægt að lesa inn í viðfangaskráningu MainManager. Áður en smellt er á BIM táknið þarf notandi að hafa valið lóð eða byggingu til að rétt 3 víddar líkan birtist. Athugið að forsenda til að BIM líkan birtist er að búið sé að lesa það inn í MainManager.
GIS Kortasvæði
Myndrænt yfirlit með korti
Með því að smella á GIS táknið birtist kort með mismunandi þekjum (Opin svæði, útlínur bygginga,,,)
Grunnupplýsingar viðfangs
Með því að smella á táknið hér að ofan birtast grunnupplýsingar ásamt skráðum myndum af lóð, byggingarhluta eða öðru viðfangi sem valið er í staðsetningarsíu.