- 07 Oct 2022
- 1 Mínútur að lesa
- Prentaðu
- MyrkurLjós
- Pdf
Nýskrá / Opna / Vista skjal
- Uppfært þann 07 Oct 2022
- 1 Mínútur að lesa
- Prentaðu
- MyrkurLjós
- Pdf
Skrá skjöl
Hefðbundna leiðin til að nýskrá skjal er að ýta á aðgerðin "Skrá skjöl" fyrir ofan listahaminn eða velja hann úr aðgerðavalmyndinni (bláa táknið). Mundu að til þess að skrá skjal þarf að vera búið að velja viðfangsefni í síunni að ofan. Hægt er að bæta við einni eða fleiri skrám í einu og draga þær á skjalasvæðið í spjaldinu, einnig er hægt að smella á skjalasvæðið og hlaða skrám úr tölvunni (skráardrifi).
Opna skjöl
Þegar skrá hefur verið skráð í kerfið birtist hún í listanum undir skjali, teikningu eða mynd. Græni takkinn vinstra megin opnar skráningarspjaldið sem inniheldur meðal annars upplýsingar um tegund skráar og staðsetningu skráar.
Bæta við nýrri útgáfu
Hægt er að uppfæra allar skrár í nýja útgáfu. Með þessari aðgerð er hægt að hlaða upp skjali í stað fyrri útgáfu. Allar tilvísanir í þessa skrá verða uppfærðar í nýju útgáfunni af skránni. Hægt er að sækja eldri útgáfur af skránni undir “saga skjals”