- 31 Mar 2023
- 1 Mínútur að lesa
- Prentaðu
- MyrkurLjós
- Pdf
Síun
- Uppfært þann 31 Mar 2023
- 1 Mínútur að lesa
- Prentaðu
- MyrkurLjós
- Pdf
MainManager býður upp á tvær síur, Staðsetningarsíu og Hægri síu og stýra þær hvaða færslur eru sýndar í gagnasvæðinu.
Staðsetningarsía
Flestar einingar í MainManager bjóða upp á síun gagna.
Staðsetningarsíu er að finna beint fyrir neðan valmynd eininganna. Hér er möguleiki að sía á lóð, hæð, rými...
Hægri sía
Í efra hægra horni á skjánum er ítarleg sía. Liturinn á síuhnappnum gefur til kynna hvort sían er tóm eða ekki (virk sía). Með því að sía á viss atriði hefur notandi áhrif hvaða gögn eru að birtast í gagnasvæðinu. Dæmi ef síað er á árið í ár þá eru gögn einungis að birtast í gangasvæðinu frá því ári.
Þegar notandinn fer inn í síuna er hægt að velja um reiti til að sía á. Þegar notandinn smellir út fyrir síuna hverfur sían. Ef notandi vill hreinsa síu geturð hann ýtt á „X“ í síuhnappinum og öll síugildi eru hreinsuð í burtu.
Festa / Losa síu
Notandi getur fest síuna með því að ýta á Festa síu þegar hann er inn í síunni. Við þetta festist sían í öllum einingum innan MainManager. Notandi getur auðveldlega losað síuna með því að ýta á Losa síu.
Sniðmát
Notandi getur útbúið sniðmát til að sía út gögn sem notandi notar mjög oft. Það er gert með því að velja þau svæði í síunni sem notandi vill sjá t.d. stöðuna óafgreitt og ákveðin lóðaflokk. Þar á eftir þarf að velja myndavélatáknið + Bæta við nýju sniðmáti. Skrifa þarf inn nafn sniðmáts og velja hvort sniðmát eigi að vera persónulegt sniðmát eða almennt. Sumir notendur hafa einungis rétt að útbúa eigið sniðmát. Sniðmátið vistar jafnframt uppsetninguna á listanum þ.e. hvernig dálkum er raðað upp, og hvort flokkun hefur verið valin o.fl.
Notandi getur síðar meir valið skilgreint sniðmát. Hægt er að útbúa fleiri ein eitt sniðmát.
Til að eyða sniðmáti er táknið rugslatunna valið.